
10/10/2023
30 mín
Auðvelt
0
Hér höfum við einstaklega gott heimagert granóla með haustlegum kryddum. Það er stökkt og bragðgott, inniheldur alveg fullt af hnetum og fræjum sem eru holl fyrir okkur. Það er sætt og bragðgott frá náttúrunnar hendi.
Ég elska þetta granóla til dæmis með skyri. Ég hef verið að borða vegan skyrið frá Veru Örnudóttir undanfarið og líkar það mjög vel! Það er bragðgott, inniheldur lítinn viðbættan sykur og er próteinríkt. Það er að sjálfsögðu vegan eins og aðrar vörur frá Veru.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
