
04/01/2016
8 klst
Auðvelt
10-20
Þegar ég fer til Ameríku verð ég alltaf að fara á Cheesecake factory að fá mér ostaköku, helst þarf ég að fara nokkrum sinnum því mig langar að smakka þær allar! Ég bara elska þessar bökuðu ostakökur sem hafa áferð eins og silki og eru léttar eins og ský.
Oreo ostakakan á cheesecake factory var fyrirmyndin af þessari ostaköku, ég fann enga nógu góða uppskrift á netinu svo ég setti saman nokkrar sem mér leist vel á og fékk út þessa unaðslegu köku. Margir eru hræddir við að gera amerískar ostakökur því sumar eiga það til að falla eða springa. Það á samt ekki að gerast með þessari uppskrift, vegna þess að til dæmis er sett hveiti út í þessa uppskrift til að koma í veg fyrir fall og sprungur og hún er bökuð í vatnsbaði til þess að passa að áferðin verður guðdómleg. Þannig ég mæli með að þið fylgið leiðbeiningum nákvæmlega og þá munið þið fá þessa guðdómlegu silkimjúku unaðslega góðu köku.
Það sem mér finnst mikill kostur við bakaðar ostakökur er að það er hægt að gera þær nokkrum dögum áður en hún er borin fram. Þannig ef planið er að bera hana fram í eftirrétt um jólin er hægt að gera hana nokkrum dögum fyrir jól þegar maður hefur tíma og geyma hana svo bara ísskáp í forminu. Kakan er svo skreytt samdægurs. Þannig má sleppa við allskonar stress sem getur fylgt því að útbúa eftirréttinn á sama tíma og aðalrétturinn er útbúinn.
Það sem þið þurfið er:
Aðferð
Kakan er svo skreytt með bræddu súkkulaði og oreo kexkökum. 1 dl af rjóma er hitaður í potti vel án þess að láta hann sjóða og honum svo hellt yfir 100 g af súkkulaði. Hrærið svo í þangað til súkkulaðisósa hefur myndast. Hellið henni þá yfir kökuna, sérstaklega girnilegt að láta sósuna leka svolítið með hliðunum og dreyfa svo oreo kekökum yfir kökuna.
Njótið vel!
Linda 🙂

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
