
19/11/2023
1 klst
Auðvelt
u.þ.b. 12 kökur
Þessar dökku lakkríssúkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði eru eitthvað annað góðar!
Hvíta súkkulaðið passar svakalega vel með lakkrísnum og dökku kökunum. Þær eru stökkar að utan, mjúkar og seigar að innan. Þær fletjast vel út í ofninum og eru því frekar þunnar.
Það mikilvægata af öllu er að baka þær ekki of lengi heldur taka þær út þegar kanturinn á kökunum lítur út fyrir að vera bakaður en þær eru ennþá vel blautar inní miðju.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
