Þessar spínat og ostafylltu smjördeigsbollur eru hreint út sagt tryllt góðar!
Ekki vera hrædd við að nota þessa fyllingu í fleira en smjördeigsbollur, hún er líka frábær í hefbundna brauðrétti!
Spínat og ostafylltar smjördeigsbollur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir+yfir hita.
- Takið ál muffinsbakka og klæðið hvert hólf með smjörpappír.
- Skerið hvert smjördeigis blaðið í tvennt og rúllið hverjum hluta létt út. Setjið í muffinsformið, þrýstið deiginu vel ofan í hornin.
- Skerið sveppina og skinkuna niður í bita og steikið á pönnu upp úr olíu. Skerið hvítlaukinn niður og bætið út á pönnuna. Skolið spínatið og þurrkið, bætið því út á pönnuna. Steikið þar til sveppirnir eru allir mjúkir í gegn og spínatið eldað. Kryddið með salt+pipar eftir smekk og svo með basil+oreganó.
- Setjið rjómaostinn út á pönnuna, bræðið hann saman við og blandið öllu vel saman.
- Slökkvið undir pönnunni. Hellið olíunni af fetaostinum (óþarfi að henda henni samt) og setjið út á pönnuna, rífið parmesan ost út á og blandið öllu saman.
- Setjið spínatfyllinguna í smjördeigið og lokið deiginu eins og á myndunum, gott að klípa hornin aðeins saman. Hrærið eitt egg og penslið yfir deigið. Bakið í 20 mín.
Ef þú prófar þessa uppskrift, láttu mig þá endilega vita! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Fylgistu með á Instagram!
Njótið vel!
Ykkar, Linda Ben