Rice Krispies kökurnar hennar Bjarkar

LindaBen

15/07/2021

0
Rice Krispies kökurnar hennar Bjarkar

Eldunartími

20 mín

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

0


Rice Krispies kökurnar hennar Bjarkar.

Björk frænka var svo yndileg á dögunu til að gefa mér uppskriftina af rice Krispies kökunum hennar en hún er fyrir löngu orðin fræg fyrir þessar kökur en þær teljast þær allra bestu!

Þær eru extra teygjanlegar og klístraðar, algjört lostæti!

Leynitrixið til að ná þeim svona klístruðum og góðum er að leyfa smjörinu og sírópinu að malla saman í örfáar mín við vægan hita. Slökkva svo undir, setja svo súkkulaðið út í og leyfa því að bráðna saman við hægt og rólega.

Rice Krispies kökurnar hennar Bjarkar

Aðferð:

  1. Bræðið saman smjör og síróp, leyfið því að malla saman við vægan hita í örfáar mínútur. Slökkvið undir pottinum.
  2. Brjótið súkkulaðið út í pottinn og bræðið saman við hægt og rólega (ætti ekki að þurfa að kveikja undir pottinum aftur, best að sleppa því)
  3. Bætið rice crispies út í og blandið öllu varlega saman þar til allt Rice Krispiesið er þakið súkkulaði.
  4. Raðið pappír bollakökuformum í ál bollakökubakka (ég mæli með þessu formi) og setjið Rice Krispies kökurnar í formin. Setjið í kæli í 4-5 klst eða þar til kökurnar hafa stirðnað.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Þrefalt súkkulaði bollakökur (v)
0
Bollakökur

Þrefalt súkkulaði bollakökur (v)

  • 0
  • 1 1/2 klst
Vanillubollakökur með kaffi og karamellu skyrsmjörkremi
0
Bollakökur

Vanillubollakökur með kaffi og karamellu skyrsmjörkremi

  • 0
  • 1 klst og 30 mín
Sykurlausar banana og súkkulaði bollakökur
0
Bollakökur

Sykurlausar banana og súkkulaði bollakökur

  • 0
  • 40 mín
Hollar gulrótaköku bollakökur
0
Bollakökur

Hollar gulrótaköku bollakökur

  • u.þ.b. 12 stk
  • 1 klst
Vegan súkkulaði bollakökur með kókossúkkulaði smjörkremi
0
Bollakökur

Vegan súkkulaði bollakökur með kókossúkkulaði smjörkremi

  • 12 stk
  • 1 klst
Vanillu bollakökur með hindberjasmjörkremi
0
Bollakökur

Vanillu bollakökur með hindberjasmjörkremi

  • 18 bollakökur
  • 1 klst
Múslí muffins
0
Bollakökur

Múslí muffins

  • 0
  • 35 mín
Cheerios bollakökur
0
Bollakökur

Cheerios bollakökur

  • Unnið í samstarfi við Cheerios
  • 1 klst
Brownieskál með ís
0
Bollakökur

Brownieskál með ís

  • 12 kökur
  • 1 klst