Litlar klístraðar pavlovur með lakkríssúkkulaðimús

LindaBen

14/04/2022

0
Litlar klístraðar pavlovur með lakkríssúkkulaðimús

Eldunartími

1 klst

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

0


Litlar klístraðar pavlovur með lakkríssúkkulaðimús.

Hér höfum við alveg unaðslega góðan eftirrétt sem ég held að þið eigið eftir að elska. Að minnsta kosti sló hann rækilega í gegn á þessu heimili!

Pavlovurnar eru stökkar að utan en blautar og klístraðar inn í. Lakkríssúkkulaðimúsin er einstaklega bragðgóð, áferðin rosalega mjúk og rjómakennd. Það sem gerir þessa samsetningu algjörlega ómótstæðilega er stökka Nóa kroppið og karamellukurlið sem er sett ofan á. Svo gott!

Það er upplagt að græja þennan eftirrétt með 1-2 daga fyrirvara ef það hentar, en það er líka hægt að smella í hann með klukkutíma fyrirvara ef það er að hentar betur. Ef þið viljið gera hann með löngum fyrirvara þá er hægt að baka pavlovurnar daginn áður og geyma við stofuhita með viskastykki yfir. Lakkríssúkkulaðimúsina er hægt að gera með a.m.k. 2 daga fyrirvara og geyma inn í ísskáp í lokuðum umbúðum með plastfilmu alveg þétt upp við músina.

Litlar klístraðar pavlovur með lakkríssúkkulaðimús, stökku Nóa kroppi og karamellukurli

Pavlovur

Lakkrís súkkulaðimús

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C og blástur.
  2. Þeytið eggjahvíturnar með cream of tartar þar til blandan byrjar að freyða.
  3. Blandið saman púðursykri og kornsterkju og setjið út í eggjahvíturnar hægt og rólega á meðan hrærivélin er í gangi á nánast fullum hraða. Þeytið þar til alveg stífir toppar hafa myndast.
  4. Setjið smjörpappír á tvær ofnplötur og útbúið mini pavlovur með því að setja 1 kúfaða msk af marengs (u.þ.b. 6 skeiðar á hverja ofnplötu), takið svo bakhliðina af skeiðinni og ýtið ofan á hverja pavlovu til að mynda skál. Bakið í u.þ.b. 13-15 mín eða þar til marengsinn er kominn með nokkuð stífa skel en gefur ennþá smá eftir þegar ýtt er varlega á hann með fingrinum (tími fer eftir stærð svo fylgist vel með). Kælið við stofuhita.
  5. Setjið eggjarauðurnar í hreina skál og þeytið með sykri þar til alveg létt og ljóst.
  6. Setjið 250 ml rjóma í meðal stóran pott og hitið að suðu (ekki sjóða), hellið honum svo út í eggjablönduna í mjórri bunu með hrærivélina á lágri stillingu. Hellið svo eggjarjómablöndunni aftur ofan í pottinn, stillið á meðal hita og hrærið stanslaust í blöndunni með þeytara þar til blandan er orðin þykk og gulari á litinn. Takið af hitanum.
  7. Veltið blöndunni með sleikju til að kæla hana svolítið og brjótið svo súkkulaðið út í hana, haldið áfram að velta þar til allt súkkulaðið hefur bráðnað. Það er mikilvægt að kæla blönduna örlítið fyrst svo súkkulaðið brenni ekki. Hellið svo blöndunni í stórt eldfast mót (sem kemst fyrir inn í ísskáp), sléttið úr og kælið inn í ísskáp þar til blandan er orðin köld (tekur ca ½-1 klst)
  8. Þeytið 250 ml rjóma og blandið saman við eggjasúkkulaði blönduna með sleikju. Mér finnst best að setja 2-3 msk rjóma út í eggjablönduna og blanda alveg saman og setja svo restina út í og blanda.
  9. Setjið u.þ.b. 2-3 msk af súkkulaðimús ofan á hverja pavlovu, toppið með u.þ.b. 1 msk af karamellukurli og 2 msk af Nóa Kroppi (fallegt að mylja nokkur Nóa kropp og dreifa yfir). Skreytið með ferskum blómum ef þið viljið.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Doré karamellusúkkulaðimús
0
Einstaklings eftirréttir

Doré karamellusúkkulaðimús

  • 10 glös
  • 4 klst
Bleiku mini marengssnitturnar hennar Eyvarar
0
Einstaklings eftirréttir

Bleiku mini marengssnitturnar hennar Eyvarar

  • 0
  • 1 klst og 30 mín
Áramóta marengsstjörnur
0
Einstaklings eftirréttir

Áramóta marengsstjörnur

  • 10 marengsstjörnur
  • 1 1/2 klst
Eitt Sett Sörumús
0
Einstaklings eftirréttir

Eitt Sett Sörumús

  • 4-6 glös
  • 12 klst
Súkkulaðimús sem er hollari en þig grunar (v)
0
Einstaklings eftirréttir

Súkkulaðimús sem er hollari en þig grunar (v)

  • 0
  • 10 mín
Ofnæmisvæn súkkulaðimús úr 3 innihaldsefnum (vegan)
0
Einstaklings eftirréttir

Ofnæmisvæn súkkulaðimús úr 3 innihaldsefnum (vegan)

  • 0
  • 20 mín
Bláberja og sítrónu vatnsdeigsbollur
0
Einstaklings eftirréttir

Bláberja og sítrónu vatnsdeigsbollur

  • 0
  • 1 1/2 klst
Hindberja trompbollur með lakkríssúkkulaðitoppi
0
Einstaklings eftirréttir

Hindberja trompbollur með lakkríssúkkulaðitoppi

  • 0
  • 1 1/2 klst
Snickers bolludags bollur með hnetusmjörs-súkkulaði rjóma og karamelluglassúr
0
Einstaklings eftirréttir

Snickers bolludags bollur með hnetusmjörs-súkkulaði rjóma og karamelluglassúr

  • 0
  • 2 klst