
11/07/2022
1 klst
Auðvelt
0
Hollir og einstaklega góðir múslíbitar.
Hér höfum við einstaklega góða múslíbita. Þeir minna óneytanlega á rice krispies kökurnar sem við flest öll þekkjum, nema talsvert hollari og henta því vel sem millimál, í nesti á ferðalaginu eða sem hollt nammi.
Þeir eru afar einfaldir að gera, maður smellir möndlusmjöri, agave sírópi, kókosolíu og dökku súkkulaði í skál, blandar saman. Smellir svo múslí út í og hrærið, útbýr kökur og smellir í frystinn. Þá eru þessir dásamlegu múslíbitar tilbúnir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
