
19/12/2022
12 klst
Auðvelt
4-6 glös
Þessi súkkulaðimús á rætur sínar að rekja til smákakanna sem við þekkjum mörg og elskum. Sörur eru órjúfanlegur hluti jólanna fyrir marga enda eru þær með eindæmum góðar og hátíðlegar smákökur.
Söru súkkulaðimús gefur smákökunum ekkert eftir. Þessi uppskrift fæddist þegar ég ætlaði að fara baka sörur og var hálfnuð með verkið, þ.e. ég átti eftir að setja þær saman. Ég var að fara vera með matarboð um kvöldið og var orðin aðeins of sein með allt, svona eins og vanalega, enda vita þeir sem þekkja mig að þeir eiga alltaf að koma 30 mín seinna í heimsókn til mín, en ég sagði þeim upphaflega að koma.
Ég fór því að hugsa hvernig ég gæti græjað eftirréttinn eldsnöggt. Ég tók því söru kremið út í ísskápnum og smellti því í hrærivélina til að fá meira loft í það. Ég þeytti svo rjóma, blandaði honum varlega saman við sörukremið og úrbjó þannig súkkulaðimús.
Botnana braut ég í glösin og setti músina yfir, bræddi svo varlega Barón súkkulaðið og setti yfir músina. Með því að tempra súkkulaðið (bræða það hægt og rólega) verður það stökkt aftur þegar það stirðnar. Þannig brotnar súkkulaðið svona skemmtilega ofan á súkkulaði músinni.
Mæli með því að gera súkkulaðimúsina með fyrirvara en ekki setja músina ofan á botnana í glösin fyrr en samdægurs þar sem þeir blotna með tímanum og það er betra þegar þeir eru svolítið stökkir.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
