Einfaldur mexíkóskur kjúklingaréttur

LindaBen

11/10/2023

0
Einfaldur mexíkóskur kjúklingaréttur

Eldunartími

30 mín

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

4-5 manns


Einfaldur mexíkóskur kjúklingaréttur með kartöflusmælki og bræddum osti.

Hugmyndin að þessum rétti þegar við vinkonurnar vorum á veitingastað út í Gdansk á dögunum en við fórum á æðislegan brunch veitingastað sem heitir Pomelp Bistro Bar. Þar pöntunuðum við okkur ofnbakaðar kartöflur með mexíkóskum kryddum og ostahjúp. Hugurinn fór alveg á flug og við pældum mikið hversu góður þessar kartöflur væru sem kjúklingaréttur.

Ég hef því verið að prófa mig áfram með þessa hugmynd undanfarið og er þessi uppskrift loksins tilbúin.

Þetta er afskaplega einfalt og fljótlegt að græja. Maður byrjar á því að setja smælkið í smástund í suðu og á meðan er maður að steikja kjúklinginn og sósuna sem hann bakast í. Lykillinn er að setja alveg nóg af hvítlauk og mexíkóskri kryddblöndu, leyfa þessu svo öllu að bakast saman inn í ofni á meðan osturinn bakast.

Einfaldur mexíkóskur kjúklingaréttur

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið smælkið í 4 bita, setjið í vatn og sjóðið í u.þ.b. 7 mín.
  3. Á meðan smælkið er að sjóða, kryddið þá kjúklingalærin vel á báðum hliðum.
  4. Skerið laukinn, papriku og hvítlaukinn, steikið upp úr smá smjöri og setjið svo kjúklingalærin á pönnuna, steikið á báðum hliðum.
  5. Hellið vatninu af kartöflunum og setjið þær á pönnuna.
  6. Hellið tómötunum á pönnuna og gulu baununum, blandið öllu saman. Dreifið rifnum osti yfir.
  7. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 20 mín eða þar til osturinn er byrjaður að verða gullin.
  8. Berið fram með fersku kóríander.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Ljúffengt, létt og kalt aðventumatarboð
0
Aðalréttir

Ljúffengt, létt og kalt aðventumatarboð

  • 6 manns
  • 30 mín
Rósmarínkyrddað lambalæri með granatepla og rósmarínpestó
0
Aðalréttir

Rósmarínkyrddað lambalæri með granatepla og rósmarínpestó

  • 6 manns
  • 3 klst
Tortelini í rjómasósu með stökkri serrano skinku
0
Aðalréttir

Tortelini í rjómasósu með stökkri serrano skinku

  • 4-5 manns
  • 20 mín
Pöddupizza
0
Aðalréttir

Pöddupizza

  • 0
  • 25 mín
Uppáhalds pizzan
0
Aðalréttir

Uppáhalds pizzan

  • 0
  • 20 mín
Mexíkósk kjúklingasúpa
0
Aðalréttir

Mexíkósk kjúklingasúpa

  • 5 manns
  • 25 mín
Einfalt basil pestó pasta með kjúkling og serrano skinku
0
Aðalréttir

Einfalt basil pestó pasta með kjúkling og serrano skinku

  • 4-5 manns
  • 20 mín
Þorskhnakkar með mexíkóskuívafi
0
Aðalréttir

Þorskhnakkar með mexíkóskuívafi

  • 4 manns
  • 30 mín
Appelsínukryddlegið lambafile í tómat og maíssalsa
0
Aðalréttir

Appelsínukryddlegið lambafile í tómat og maíssalsa

  • 0
  • 40 mín