Ljúffengt, létt og kalt aðventumatarboð

LindaBen

13/12/2023

0
Ljúffengt, létt og kalt aðventumatarboð

Eldunartími

30 mín

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

6 manns


Ég var með létt aðventumatarboð um daginn sem heppnaðist alveg svakalega vel. Það var allt kalt sem ég bar fram og einstaklega ljúffengt. Ég elska köld matarboð því það er svo auðvelt að smella þeim saman og því hægt bjóða fólki í mat án þess að hafa nánast nokkuð fyrir hlutunum, sem ég held að við flest öll séum þakklát fyrir á þessum tímum þegar allir eru uppteknir.

Ég bar fram einiberjareykta skinku með piparrótarssósu og laufabrauði. Tvíreykt hangikjöt sem er ótrúlega bragðmikið og svakalega jólalegt og gott hangikjöt. Hver borðar ekkret mikið af hangikjötinu en það er mjög skemmtilegt að bera það fram og allir fá sér smá bita. Hangikjötið geymist lengi svo það er hægt að njóta áfram lengi. Hægt er einnig að nota piparrótasósuna með hangikjötinu. Snittur með rifsberjakæfu, döðlupestó klettasalati og granateplakjötnum, og svo einn brie snakkpylsujólasvein sem gerði borðið svo skemmtileg og rauðvínssalami.

Við vorum 6 manns og veitingarnar smellpössuðu fyrir okkur.

Ljúffengt, létt og kalt aðventumatarboð

Aðferð:

  1. Skerið nokkrar sneiðar af hangikjötinu og raðið fallega á bakka.
  2. Skerið einiberjareyktu skinkuna í sneiðar og berið fram með piparrótarssósu og laufabrauði.
  3. Skerið brie ostinn þannig að þið skerið af u.þ.b. 1 – 1 1/2 cm af  öðrum endanum og snúið honum þannig að skurðurinn á bitanum snúi upp og leggist upp við skurðinn á ostinum. Raðið Lukkubita undir bitann sem var skorinn frá þannig að það myndist einskonar jólasveinahúfa.  Skerið litinn bita af öðrum brie og skerið hann út þannig að hann sé hringur og leggið við hina endana á Lukkubitunum. Skreytið með rauðu beri og nammiaugum til að gera jólasvein. Berið fram með kexi og sultu.
  4. Skerið baguettið í sneiðar og smyrjið vel af rifsberjakæfunni ofan á. Setjið 1 tsk af döðlupestó yfir og toppið með klettasalati og nokkrum granateplakjötnum.
  5. Skerið rauðvínssalamiið niður í sneiðar.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Rósmarínkyrddað lambalæri með granatepla og rósmarínpestó
0
Aðalréttir

Rósmarínkyrddað lambalæri með granatepla og rósmarínpestó

  • 6 manns
  • 3 klst
Tortelini í rjómasósu með stökkri serrano skinku
0
Aðalréttir

Tortelini í rjómasósu með stökkri serrano skinku

  • 4-5 manns
  • 20 mín
Pöddupizza
0
Aðalréttir

Pöddupizza

  • 0
  • 25 mín
Einfaldur mexíkóskur kjúklingaréttur
0
Aðalréttir

Einfaldur mexíkóskur kjúklingaréttur

  • 4-5 manns
  • 30 mín
Uppáhalds pizzan
0
Aðalréttir

Uppáhalds pizzan

  • 0
  • 20 mín
Mexíkósk kjúklingasúpa
0
Aðalréttir

Mexíkósk kjúklingasúpa

  • 5 manns
  • 25 mín
Einfalt basil pestó pasta með kjúkling og serrano skinku
0
Aðalréttir

Einfalt basil pestó pasta með kjúkling og serrano skinku

  • 4-5 manns
  • 20 mín
Þorskhnakkar með mexíkóskuívafi
0
Aðalréttir

Þorskhnakkar með mexíkóskuívafi

  • 4 manns
  • 30 mín
Appelsínukryddlegið lambafile í tómat og maíssalsa
0
Aðalréttir

Appelsínukryddlegið lambafile í tómat og maíssalsa

  • 0
  • 40 mín