
21/03/2022
-
Auðvelt
0
Hreinsandi grænn morgundrykkur.
Þennan drykk hef ég drukkið á hverjum morgni seinustu vikurnar og finnst hann algjörlega frábær! Hann hefur sérstaklega hreinsandi áhrif á líkamann þegar maður drekkur hann strax á morgnanna og með því að drekka drykkinn reglulega stuðlar hann meðal annars að heilbrigðari og meira ljómandi húð.
Ég fæ mér hann yfirleitt um 7 leytið og fæ mér svo aftur morgunmat um kl 9. Ég finn hvað þessi drykkur er að gera mér gott en ég hef meðal annars náð að minnka kaffidrykkju mína um helming síðan ég byrjaði að drekka þennan drykk á morgnanna þar sem drykkurinn gefur mér náttúrulega orku.
Ég nota Nutribullet til þess að blanda þennan drykk og hef gert í fjölda mörg ár. Finnst svo mikil snilld að smella öllum innihaldsefnunum beint í glasið, blanda og drekka svo úr sama ílátinu. Ég er nýbúin að skipta út blandaranum mínum fyrir hvíta Nutribullet þar sem mér finnst hann falla svo fallega að umhverfinu hér heima og þarf því ekki stanslaust að vera færa blandarann í og upp úr tækjaskúffunni hér heima. Þú getur skoðað blandarann hér.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
