
29/06/2022
5 mín
Auðvelt
passlegt á 3-4 ísa
Súkkulaði ís með dökkri piparmyntu súkkulaðiíssósu og Nóa kroppi.
Ef þú vilt taka ísinn þinn upp á annað stig með heimalagaðri íssósu þá er þetta sósan fyrir þig! Hér höfum við alveg svakalega góða þykka piparmyntu íssósu úr dökku súkkulaði. Hún er rosalega einföld að gera, maður einfaldlega hitar svolítið af rjóma og bræðir súkkulaðið saman við. Best er svo að hella sósunni yfir ísinn á meðan hún er ennþá svolítið heit þar sem hún sósan er þykk, namm svo gott!
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
