Dásamlegur forréttur með gröfnum og reyktum laxi

LindaBen

22/12/2022

0
Dásamlegur forréttur með gröfnum og reyktum laxi

Eldunartími

10 mín

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

0


Hér höfum við virkilega hátíðlegan forrétt sem er á sama tíma afskaplega léttur og ferskur. Fullkominn forréttur þegar maður vill eitthað létt í maga til dæmis fyrir þyngri máltíðir. Þetta er líka fljótlegur forréttur, en það tekur u.þ.b. 10 mín að smella honum saman.

Grafni og reykti laxinn er borinn fram á salatbeði sem er svolítið ólíkt því hvernig við íslendingarnir erum flest vön að borða grafna og reykta laxinn okkar. Ég hvet ykkur til að prófa því ég er viss um að þessi réttur eigi eftir að koma ykkur skemmtilega á óvart.

Eins og alltaf voru öll hráefni í þessa uppskrift keypt í Krónunni.

Dásamlegur forréttur með gröfnum og reyktum laxi

Aðferð:

  1. Raðið klettasaltinu á bakka í hring með gati í miðjunni.
  2. Skerið reykta og grafna laxinn í sneiðar, raðið honum ofan á klettasalatið.
  3. Skerið agúrkuna í þunnar sneiðar langsum, gott að nota ostaskera t.d.. Rúllið svo agúrkusneiðunum upp í kuðunga.
  4. Skerið radísurnar örþunnt og raðið á bakkann.
  5. Dreifið fersku dilli víð og dreif á bakkann.
  6. Setjið vel af graflaxasósu í skál og setjið skálina í miðjuna á bakkann.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Ostafylltar perur
1
Forréttir

Ostafylltar perur

  • 6 manns
  • 35 mín
Rauðrófu carpaccio
0
Forréttir

Rauðrófu carpaccio

  • 0
  • 15 mín
Litlar dill laxasnittur
0
Forréttir

Litlar dill laxasnittur

  • 0
  • 10 mín
Bakaður brie í ananas og  mangó sultu og timjan
0
Forréttir

Bakaður brie í ananas og mangó sultu og timjan

  • 0
  • 25 mín
Graflaxsósa
0
Forréttir

Graflaxsósa

  • 0
  • 15 mín
Beikonosta fylltar döðlur
0
Forréttir

Beikonosta fylltar döðlur

  • 6-8 manns
  • 5 mín
Ostakúlu snakkídýfa
1
Forréttir

Ostakúlu snakkídýfa

  • 0
  • 15 mín
Áramóta ostabakki
0
Forréttir

Áramóta ostabakki

  • 0
  • -
Bakaður epla og kanil brie ostur
0
Forréttir

Bakaður epla og kanil brie ostur

  • 0
  • 25 mín