Nauta quesadilla

LindaBen

08/03/2023

0
Nauta quesadilla

Eldunartími

15 mín

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

0


Hér höfum við ljúffengar nauta quesadillas sem er afar einfaldur og fljótlegur kvöldmatur. Það tekur einungis 15 mín að smella í þennan kvöldmat.

Maður byrjar á því að steikja nautakjötið (líka hægt að nota afgangs nautakjöt í þessa uppskrift), bætir svo lauk, papriku, hvítlauk og gulum baunum á pönnuna, ásamt auðvitað taco kryddblöndu. Svo setur maður nóg af osti á vefjur og nautakjötsblönduna, steikir svo á pönnu þar til osturinn bráðnar (líka hægt að nota slétt samlokugrill), skerð svo niður og bætir grísku jógúrti á, fersku kóríander og salsa sósu.

Einfalt, mjög fljótlegt og virkilega bragðgott!

Nauta quesadilla

Aðferð:

  1. Steikið nautakjötið á pönnu, á meðan það er að eldast, skerið laukinn niður í sneiðar og bætið honum svo á pönnuna.
  2. Skerið paprikuna í sneiðar og bætið á pönnuna. Steikið þar til þær eru nánast orðnar mjúkar.
  3. Rífið hvítlauksrifin niður og bætið á pönnuna ásamt gulu baununum, steikið þar til allt er eldað í gegn.
  4. Raðið vefjnum á borðið og skiptið ostinum á milli þeirra allra.
  5. Skiptið svo nautakjötsblöndunni á milli 4 þeirra og lokið svo með þeim sem eru bara með osti.
  6. Steikið á pönnu upp úr örlítilli kókosolíu eða ólífu olíu á báðum hliðum á vægum hita, passið að loka pönnunni með loki svo hitinn lokist inni og bræði ostinn.
  7. Skerið í sneiðar og berið fram með grísku jógúrti, kóríander og salsa sósu.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Brie bitar í smjördeigi
0

Brie bitar í smjördeigi

  • 0
  • -
Bakaður hátíðar camembert
0

Bakaður hátíðar camembert

  • 2-4 manns
  • 25 mín
Blaberja og hnetusmjörs chiagrautur
0

Blaberja og hnetusmjörs chiagrautur

  • 0
  • 10 mín
Kjúklingalæri í ítalskri rjómasósu borin fram með kartöflumús
0

Kjúklingalæri í ítalskri rjómasósu borin fram með kartöflumús

  • 0
  • 30 mín
Vegan Vanillukaka með ástríðuávexti
0

Vegan Vanillukaka með ástríðuávexti

  • 0
  • -
Vegan grænmetisvefjur
0

Vegan grænmetisvefjur

  • 0
  • 15 mín
Grænmetisréttur miðjarðarhafsins
0

Grænmetisréttur miðjarðarhafsins

  • 4 manns
  • 40 mín
Bleikur og sætur jarðaberja bragðarefur
0

Bleikur og sætur jarðaberja bragðarefur

  • 0
  • 10 mín
Hreinsandi grænn morgundrykkur
0

Hreinsandi grænn morgundrykkur

  • 0
  • -