
22/05/2023
2 klst
Auðvelt
10-12 stk
Ef þið langar í góðan ís sem er á sama tíma hollur þá ert þú komin/nn á réttan stað.
Þessi ís er aðallega úr grísku jógúrti, próteindufti og rjómasúkkulaði án viðbætts sykurs. Ég setti samt í uppskriftina smá sykurlaust síróp og vanilludropa þar sem próteinduft eru svo svakalega mismunandi, það er því vissara að smakka blönduna þegar búið er að setja próteinið út í og sjá þá hvort þú viljir bæta meiri sætu eða bragði við.
Svo útbýr maður íssmákökurnar með því að setja matskeið af jógúrti á smjörpappír, setur í fyrstinn og hjúpar svo með síríus rjómasúkkulaði án viðbættssykurs.
Þetta er alveg svakalega gott að eiga inn í frysti þegar ísþörfin læðist yfir mann, en manni langar samt ekki í neitt óhollt.
Mér finnst best að leyfa íssmákökunum aðeins að ná mesta frosinu úr sér áður en ég borða þær, þannig eru þær rosalega creamy og góðar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
