
19/06/2023
10 mín
Auðvelt
0
Hér höfum við virkilega góðar snittur með rjómaosti, jarðaberjum, sumarsíld og basil pestó. Þær henta vel til dæmis sem forréttur, í brunchinn eða á veisluborðið.
Þetta eru fljótlegar snittur sem auðvelt er að græja. Ég kaupi blini pönnukökurnar tilbúnar í Krónunni en þær fást örugglega á fleiri stöðum líka. Einnig er ég viss um að þessar pönnukökur komi glimmrandi vel út líka sem svona litlar snittur.
Snitturnar eru einstaklega ljúffengar, sumarlegar og ferskar.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
