Maltesers brownieostakaka

LindaBen

09/10/2023

0
Maltesers brownieostakaka

Eldunartími

9 klst

Erfiðleikastig

Auðvelt

Fjöldi

24 bitar


Þessi Maltesers brownieostakaka er eitthvað annað góð!

Browniebotninn er seigur, þéttur og klístraður. Hann búinn til úr 70% súkkulaði sem gerir það að verkum að hann er örlítið rammur og ríkur af súkkulaðibragði. Hann tónar alveg svakalega vel við mjúku og sætu ostakökuna sem er með stökku Maltesers súkkulaði, bæði í deiginu og er skreytt ofan á kökunni.

Þessi kaka hentar mjög vel í veislur. Hún er frekar stór, 40×30 cm og gefur u.þ.b. 24 bita. Það er upplagt að gera þessa köku með ágætis fyrirvara þar sem hún er geymd í frysti. Þannig ef þú ert eins og ég, vilt undirbúa veislur með fyrirvara til þess að vera ekki í stressi á veisludeginum sjálfum, þá er þetta kaka sem þú ætti að vista hjá þér.

Maltesers brownieostakaka

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C, undir og yfir hita.
  2. Setjið smjör og sykur í pott, hitið rólega svo smjörið bráðni. Haldið áfram að hita blönduna og leyfið henni að malla varlega í nokkrar mínútur eða þar til sykurkornin eru aðeins farin að minnka og blandan orðin meira sírópskennd. Takið af hitanum og leyfið blöndunni að kólna svolítið.
  3. Setjið hveiti og kakó saman í skál.
  4. Hellið smjör og sykurblöndunni í skál, setjið suðusúkkulaðið ofan í skálina og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað saman við.
  5. Bætið eggjunum út í blönduna og hrærið.
  6. Bætið hveiti og kakó út í og hrærið.
  7. Setjið smjörpappír í 40×30 cm stórt form og hellið deiginu í formið. Bakið í u.þ.b. 30 mín eða þar til stökk himna hefur myndast yfir kökunni og endarnir eru bakaðir í gegn (kakan er ennþá klessuleg inn í miðjunni).
  8. Kælið kökuna.
  9. Hrærið saman rjómaost og flórsykur.
  10. Þeytið 500 ml rjóma og veltið honum varlega saman við rjómaostablönduna með sleikju.
  11. Brjótið 135 g (1 poka) af Maltesers ogg blandið honum saman við deigið, hellið því ofan á kaldan brownie botninn. Setjið í frysti í a.m.k. 8 klst.
  12. Takið kökuna úr frystinum og skerið hana í 24 bita.
  13. Þeytið 200 ml rjóma og sprauið rjóma ofan á hvern bita. Skreytið með Maltesers.

Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben

Fylgistu með á Instagram!

Fylgstu með á Tiktok!

Njótið vel!

Ykkar

 

 

 

 

Fáðu gómsætan tölvupóst

Njóttu þess að fá uppskriftirnar beint í pósthólfið þitt

0 Athugasemd(ir)

Innskráðu þig til að skrifa athugasemd

Þér gæti einnig líkað við

Mjúkar og seigar piparkökur með stökku karamellukurli
0
Kökur og eftirréttir

Mjúkar og seigar piparkökur með stökku karamellukurli

  • U.þ.b. 15 kökur
  • 1 klst
Dökkar lakkríssúkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði
0
Kökur og eftirréttir

Dökkar lakkríssúkkulaðibitakökur með hvítu súkkulaði

  • u.þ.b. 12 kökur
  • 1 klst
Piparkökujógúrtkaka
0
Kökur og eftirréttir

Piparkökujógúrtkaka

  • 0
  • 24 klst
Súkkulaðibitasmákökur án mjólkur og eggja (vegan)
0
Kökur og eftirréttir

Súkkulaðibitasmákökur án mjólkur og eggja (vegan)

  • 13
  • 30 mín
Hafrabitar með súkkulaði
0
Kökur og eftirréttir

Hafrabitar með súkkulaði

  • 16 bitar
  • 30 mín
Bláberjasnúðar (v)
0
Kökur og eftirréttir

Bláberjasnúðar (v)

  • 0
  • -
Nammismákökur
0
Kökur og eftirréttir

Nammismákökur

  • 0
  • -
Grillað smore’s nachos
0
Kökur og eftirréttir

Grillað smore’s nachos

  • 0
  • 30 mín
Sítrónubaka
0
Kökur og eftirréttir

Sítrónubaka

  • 0
  • 2 klst