
27/10/2023
25 mín
Auðvelt
0
Pöddupizza er sniðug einföld hugmynd fyrir Halloween fyrir bæði börn og fullorðna. Maður einfaldlega skiptir pizzadeigi í 4 hluta, fletur þá út og setur sósu og ost. Svo notar maður ólífur, pepperóní og papriku til að gera pöddur.
Svo til að gera pizzurnar aðeins meira krúttlegar er sniðugt að setja nammi augu á pepperóníið, en það þarf samt ekki frekar en maður vill.
Ef þú prófar þessa uppskrift þá þætti mér svo vænt um að heyra frá þér! Skildu eftir skilaboð hér fyrir neðan, eða taktu mynd og merktu mig á Instagram @Lindaben
Njótið vel!
Ykkar

Þessi síða var stofnuð í janúar 2016 og hefur farið örtvaxandi síðan. Í dag er síðan orðin ein af vinsælustu uppskriftasíðum landsins og er þekkt fyrir einfaldar uppskriftir með greinagóðum leiðbeiningum sem flestum þykir þægilegt að fara eftir.
